24.6.2008 | 08:22
Einbeita sér kannski meira að boltanum
Þessir tveir (Guðjón og Stefán) eru í einhverju dramakasti um að þeir séu á dart-skífunni niðri í KSÍ. Þeir væru meiri menn í mínum huga ef þeir hættu þessu endalausa kvabbi og einbeittu sé að boltanum í stað þess að vera í sandkassaleik eftir hvern einasta leik sem ekki vinnst. Og líka er paranojan orðin þjálfaranum óyfirstíganleg ..... spurning um að fara í skoska boltann bara :)
„Hann sló mig í andlitið“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Pepsi-deildin | Facebook
Athugasemdir
uh...
Varst þú á leiknum, sástu yfirleitt hvað gerðist???
kv.
Einar Ben, 24.6.2008 kl. 08:32
ekki var ég á leiknum en sá slow motion replei'ið í sportinu í gærkvöldi.. Og róóóóóóóóóóóólegur á hversu mikið maðurinn hrundi í jörðina eftir að hinn gæjinn danglaði í hann... Algjör kveif semsagt.. og auk þess óð hann líka í andlitið á honum þarna Hall... hefðu báðir átt að fá gula spjaldið. Auk þess tók Stefán eitt skref áður en hann kastaðist upp í loftið og hrundi með tilþrifum, hannn kastaðaist upp í loftið þegar hann loksins fattaði að Hallur hafði dangað lauslega í hann... kellingar allt saman...
Steinar (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 08:36
Drogba fékk rautt fyrir nákvæmlega samskonar brot í CL í vor. Þetta var sýnt í markakvöldinu á sýn í gærkvöld. Þó að Stefán hafi dottið með tilþrifum breytir það ekki því að hann var sleginn og um klárt rautt spjald var að ræða. Dómarinn skeit í sig.
Arnfinnur (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 08:54
Nei ég var ekki á leiknum .. en eftir hvern einasta leik koma þessir menn í fjölmiðla og gráta. ég fylgist bara með fréttum og það dugar til að heyra kvartið og kveinið.
Jón H B, 24.6.2008 kl. 09:00
Semsagt eins og mig grunaði, fordómar þínir gera þér ekki kleift að hugsa rökrétt.....!!!
Önnur stutt spurning, ertu búin að lesa viðtalið við GÞ á fótbolti.net?
kv.
Einar Ben, 24.6.2008 kl. 09:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.